
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
9.1.2019 Kl: 16:15
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni frá Neyðarlínunni á ellefta tímanum í morgun þar sem óskað var eftir því að bráðveikur maður í Ólafsvík yrði sóttur með þyrlu. TF-SYN, þyrla
Landhelgisgæslunnar, hélt af stað frá Reykjavík skömmu síðar og var ákveðið að
sjúkrabíll færi til móts við þyrluna, vestan jökuls, vegna slæmra veðurskilyrða
á Snæfellsnesi. Klukkan 11:34 lenti þyrlan við Hólavoga þar sem sjúklingurinn
var fluttur yfir á hífingarbörur og færður um borð í þyrluna. TF-SYN flutti
manninn á Landspítalann í Fossvogi.