
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
27.1.2019 Kl: 09:41
TF-LIF, þyrla
Landhelgisgæslunnar, flutti veikan skipverja á frystitogara á sjúkrahús í gærkvöld.
Skipstjóri togarans hafði samband við Neyðarlínu vegna veikinda um borð og
eftir samráð við þyrlulækni var ákveðið maðurinn yrði fluttur á sjúkrahús í
Reykjavík með þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Skipið var þá statt um 40 sjómílur
vestur af Bjargtöngum. TF-LIF tók á loft
frá Reykjavík klukkan 18:30 og var komin rúmri klukkustund síðar að skipinu.
Vel gekk að hífa skipverjann um borð í þyrluna.
Sjólag og skyggni var gott og hægur vindur.
Þyrlan flutti manninn á Landspítalann í Fossvogi og lenti þar laust fyrir
klukkan níu í gærkvöld.