
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
4.3.2019 Kl: 11:32
Undanfarna
mánuði hafa umfangsmiklar endurbætur staðið yfir á mötuneyti öryggissvæðisins á
Keflavíkurflugvelli sem í daglegu tali nefnist 179 en það var byggingarnúmer
hússins þegar það tilheyrði varnarliðinu. Mannvirkjadeild Landhelgisgæslunnar
hefur yfirumsjón með verkefninu fyrir hönd stofnunarinnar en verklegar
framkvæmdir eru á vegum Framkvæmdasýslu ríkisins og var Bergraf fengið til að
annast þær.
Breytingarnar felast í stækkun matsalarins, endurnýjun eldhúss auk
þess sem ný viðbygging hýsir salerni og þvottahús. Mötuneytið var tekið í
notkun í dag þegar fyrstu gestirnir settust að snæðingi í hádeginu.