Þyrla Landhelgisgæslunnar, áhöfnin á varðskipinu Tý og sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út í hádeginu.
13.5.2020 Kl: 13:01
Þyrla Landhelgisgæslunnar, áhöfnin á varðskipinu Tý og
sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út í
hádeginu vegna báts sem datt úr sjálfvirkri tilkynningarskyldu og svaraði ekki
kalli stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Þegar
merki frá bátnum hætti að berast stjórnstöð Landhelgisgæslunnar var þegar stað
hafist handa við að ná sambandi við bátinn auk skipa í grenndinni en án
árangurs.
Báturinn var staddur um þrjár sjómílur vestur af Stafnesi þegar
síðast var vitað um hann. Einn var um borð. Þegar tilraunir til að komast í
samband við bátinn báru engan árangur var ákveðið að kalla út þyrlu
Landhelgisgæslunnar, áhöfnina á varðskipinu Tý auk sjóbjörgunarsveita frá
Sandgerði.
TF-EIR tók á loft frá Reykjavík klukkan 12:20 en skömmu síðar náðist
samband við línubátinn Bergvík, sem var í grenndinni, í gegnum farsíma. Þá kom
í ljós að báturinn sem saknað var hafði orðið rafmagnslaus og ekki reyndist unnt að koma vél hans í gang. Um það leyti sem línubáturinn Bergvík kom að náðist að koma vél bátsins
í gang. Hann heldur nú til hafnar í fylgd Bergvíkur. Að auki siglir bátur frá
björgunarsveitinni í Sandgerði á móti til að gæta fyllsta öryggis.
Landhelgisgæslan leggur ríka áherslu á að sjófarendur sinni
hlutvörslu á rás 16 sem getur reynst lífsnauðsynleg í neyð.
Ljósmynd: Árni Sæberg.