
Landhelgisgæslan annaðist útkall á Grænlandi
21. ágúst 2026
Þyrlur Landhelgisgæslunnar eru þannig búnar að þær geta annast sjúkraflug langt frá landi ef svo ber undir. Slík flug er...

2.10.2020 Kl: 12:12
Áhafnir varðskipanna Þórs og Týs hafa að undanförnu sinnt viðhaldi á vitum og ljósduflum víða um land. Á dögunum sinnti áhöfnin á Tý slíku viðhaldi við tvö ljósdufl í Breiðafirði. Kafarar varðskipsins köfuðu niður að legufærum þeirra og mátu ástandið.
Sérstaklega er hugað að því hvort keðjan sé farin að þynnast auk þess sem gróður hreinsaður frá.
Ef hlekkirnir verða of þunnir geta duflin slitnað upp. Meðfylgjandi myndband gefur einstaka innsýn inn í störf kafaranna við góðar aðstæður í Breiðafirði í vikunni.
Ástandið á keðjunum er skoðað og gróður hreinsaður frá.
Unnið var að viðhaldi á tveimur ljósduflum.
Baujusteinninn á botninum.