
Yfirmenn strandgæslna á Norður-Atlantshafi funda í Reykjavík
21. október 2026
Fundur yfirmanna strandgæslna á Norður-Atlantshafi, North Atlantic Coast Guard Forum (NACGF), hófst í Reykjavík í gær. Á...

Áhöfn og sjóliðar frá kólumbíska skólaskipinu ARC Gloria, sem nú er í heimsókn í Reykjavíkurhöfn, heimsóttu varðskipið Freyju í vikunni.
Einar Valsson, skipherra, tók á móti hópnum og kynnti þeim starfsemi varðskipsins og verkefni Landhelgisgæslunnar.
ARC Gloria er þriggja mastra skólaskip og flaggskip kólumbíska sjóhersins, sem gegnir mikilvægu hlutverki við þjálfun sjóliða og kynningu á Kólumbíu um allan heim. Skipið hefur vakið athygli gesta og gangandi í Reykjavík undanfarna daga.

Einar Valsson afhendir fulltrúa áhafnarinnar minnispening Landhelgisgæslunnar og mynd af varðskipinu Freyju.
