Kennslumyndbönd um móttöku þyrlu á landi og slökkvistörf komin í loftið

14. ágúst, 2026

Sumarið 2025 fór fram umfangsmikið samstarfsverkefni Brunamálaskólans, Landhelgisgæslu Íslands, Brunavarna Árnessýslu, Slökkviliðs Grindavíkur, Landsbjargar, Lögreglu og Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossflugvelli.

Markmið verkefnisins var að þróa kennsluefni fyrir þjálfun viðbragðsaðila með áherslu á öryggi, samhæfingu og rétt verklag við umgengni við þyrlur á vettvangi.

Settar voru upp raunverulegar aðstæður þar sem tekin voru upp kennslu- og þjálfunarmyndbönd um umgengi við þyrlur Landhelgisgæslunnar í tengslum við almenna móttöku á slysavettvang sem og í aðgerðum vegna gróðurelda — aðstæður sem allir viðbragðsaðilar á Íslandi þurfa að vera undirbúnir fyrir.

Afurð verkefnisins endurspeglar mikilvægi góðrar samvinnu og samhæfingar milli viðbragðsaðila og þann ávinning sem fæst með sameiginlegri þjálfun, miðlun reynslu og faglegri aðkomu allra sem koma að slysavettvangi eða öðrum björgunarstörfum.

🎥 Meðfylgjandi myndbönd verða gerð aðgengileg og sett inn í kennsluefni fyrir viðbragðsaðila um land allt.

Móttaka þyrlu á landi.

Slökkvistörf með þyrlu

Fleiri Fréttir