
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, tók í gær á móti Ludovic Poitou, aðstoðaryfirmanni flotastjórnstöðvar Atlantshafsbandalagsins í Northwood á Englandi.
Á fundinum var rætt um öryggismál og eftirlit á Norður-Atlantshafi auk þess sem farið var yfir þátttöku Landhelgisgæslunnar í varnaræfingunni Norður Víkingi, sem hófst formlega í vikunni. Þá fékk Poitou kynningu á starfsemi stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð.
Með Poitou í för var Hallbjörg Erla Fjeldsted, starfsmaður Landhelgisgæslunnar, sem starfar nú sem fulltrúi Íslands í flotastjórnstöð Atlantshafsbandalagsins í Northwood. Auðunn F. Kristinsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar, áætlana og þróunar hjá Landhelgisgæslunni, tók einnig þátt í fundinum.
