

Þyrlur Landhelgisgæslunnar eru þannig búnar að þær geta annast sjúkraflug langt frá landi ef svo ber undir. Slík flug eru sem betur fer ekki algeng en þó annast þyrlusveitin slík flug í nokkur skipti á ári.
Í gær bárust Landhelgisgæslunni tvær beiðnir um að sækja veika einstaklinga langt á haf út. Annars vegar var um að ræða veikan skipverja um borð í farþegaskipi sem statt var um 140 sjómílur norðaustur af landinu og hins vegar var óskað eftir aðstoð vegna veiks farþega um borð í farþegaskipi inni á firði á Grænlandi. Björgunarmiðstöðin í Nuuk óskaði eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar þar sem þyrlur frá Íslandi voru næstu tiltæku bjargir.
Þegar farið er í svo löng sjúkraflug er önnur þyrla og þyrluáhöfn kölluð út og höfð til taks. Auk þess fylgir áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF þeirri þyrlu sem sinnir útkallinu en einnig annast varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar samskipti og samræmingu aðgerða við skip, loftför og erlendar stjórnstöðvar.
Áhöfn TF-GRO, þyrlu Landhelgisgæslunnar, tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 14:35 í gær og lenti á Akureyri þar sem eldsneyti var tekið áður en haldið var til móts við farþegaskipið sem statt var norðaustur af landinu. Skömmu síðar tók eftirlitsflugvélin TF-SIF á loft frá Reykjavíkurflugvelli til að fylgja þyrlunni.
Klukkan 16:11 var haldið frá Akureyri í átt að skipinu og laust eftir klukkan 17:00 var skipverjinn hífður um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þaðan var flogið með hann til Ísafjarðar þar sem sjúkraflugvél beið og flutti hann áfram til Reykjavíkur.
Á Ísafirði hófst undirbúningur fyrir flugið til Grænlands. Tekið var á loft um kvöldmatarleytið og stefnan tekin á flugvöllinn í Nerlerit Inaat, einnig þekktur sem Constable Point flugvöllur. Um er að ræða lítinn flugvöll innst við Hurry-fjörð sem gengur inn af Scoresbysundi á Austur-Grænlandi.
Þar var lent klukkan 21:00 og eldsneyti tekið áður en haldið var til hífingar skammt frá. Hífingin gekk vel og sjúklingurinn var fluttur á flugvöllinn í Constable Point þar sem sjúkraflugvél Norlandair beið og flutti hann til Íslands.
Útköllin gengu sérlega vel og meðfylgjandi kort sýnir glögglega hversu annasamur dagurinn var hjá þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og áhöfn TF-SIF.
