
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...

11.4.2022 Kl: 13:10
Áhöfnin á varðskipinu Freyju tók þátt í svokallaðri uppgönguæfingu á dögunum þar sem hluti áhafnarinnar fór um borð í þýsku freigátuna Sacsen. Áhafnir Landhelgisgæslunnar hljóta margvíslega þjálfun til að bregðast við ólíkum og krefjandi aðstæðum á hafinu umhverfis Ísland. Norska herskipið Thor Heyerdahl tók einnig þátt í æfingunni sem var liður í Norður-Víkingi 2022.Á Norður-Víkingi hefur áhöfnum Landhelgisgæslunnar gefist mikilvægt tækifæri til að samhæfa aðgerðir með samstarfsþjóðunum, einkum og sér í lagi á sviði leitar og björgunar.Ljósmyndir: Guðmundur St. Valdimarsson.
Á æfingunni var uppganga æfð.
Einar H. Valsson, skipherra.
Aðgerðin kortlögð.
Birgir Hreiðar Björnsson, yfirstýrimaður. 