Byggingarefni flutt með Þór í Grímsey

28. júní, 2022

Framkvæmdir við nýja kirkju í fullum gangi í Grímsey

28.6.2022 Kl: 09:54

Sóknarnefnd Miðgarðakirkju hafði samband við
Landhelgisgæsluna fyrr á árinu og vildi kanna hvort mögulegt væri að flytja
byggingarefni með varðskipinu Þór frá Reykjavík vegna framkvæmda á nýrri kirkju
í Grímsey í stað þeirrar sem brann fyrir tæpu ári.

Okkur var bæði ljúft og skylt að verða við þessari bón.
Fyrir skipulagða eftirlitsferð varðskipsins frá Reykjavík var sex brettum af
grjóti og um sex tonn af timbri komið fyrir í varðskipinu í Reykjavík og siglt
með efnið norður í Grímsey. Grjótið var flutt beint í eyna en timbrinu var
komið fyrir á Dalvík.

Landhelgisgæslan tekur stolt þátt í þessu mikilvæga
samfélagsverkefni og það er afar ánægjulegt að geta lagt okkar lóð á
vogarskálina við framkvæmdir á nyrsta kirkjubóli landsins. Georg Kr. Lárusson,
forstjóri Landhelgisgæslunnar, var með varðskipinu í för og heimsótti Grímsey
þegar byggingarefninu var komið til skila.

GrimseyHöfnin í Grímsey

GrjoteythorSex bretti af grjóti voru flutt í eyna.

Grimsey-2Brettin flutt með léttbát varðskipsins. 

Timbur-i-luguTimbur í lúgu.

Grimsey-1Brunað með grjót út í Grímsey.