Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins að hefjast
13.1.2023 Kl: 15:55
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að
hefjast með komu flugsveitar norska flughersins. Þetta er í sjöunda sinn sem
Norðmenn leggja Atlantshafsbandalaginu til flugsveit til að taka þátt í
verkefninu á Íslandi en norski flugherinn var síðast hér á landi árið 2021. Flugsveitin
tekur þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins
í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center) og á öryggissvæðinu á
Keflavíkurflugvelli, (NATO Control and Reporting Center-Keflavik).
Norska flugsveitin kemur til landsins á mánudaginn, með
fjórar F-35 orrustuþotur og 80 liðsmenn. Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að
varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu frá 16. til 24. janúar en
dagsetningarnar geta breyst vegna veðurs.
Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og áður
og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland. Flugsveitin
kemur til með að hafa aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli en þar
dvelja einnig flugsveitir aðildarríkja Atlantshafsbandalagins við
kafbátaeftirlit. Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmd verkefnisins í umboði
utanríkisráðuneytisins og í samvinnu við
Isavia.
Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki um miðjan febrúar.