
Björgunarsveitir og þyrlusveit kallaðar út vegna aflvana fiskibáts – Þrjú þyrluútköll það sem af er degi
17. júlí 2026
Engan sakaði þegar fiskibátur varð aflvana skammt utan hafnarinnar á Stykkishólmi í dag og rak í átt að landi. Þyrlusvei...

16.3.2023 Kl: 14:43
Í kuldatíðinni sem staðið hefur síðustu daga og vikur hefur
víða myndast lagnaðarís þar sem sjólag er nægjanlega stillt. Á þetta við bæði
innan og utan hafna. Á meðfylgjandi myndum sem Heimir Sverrisson starfsmaður
Landhelgisgæslunnar á Siglufirði tók í morgun má sjá fláka af lagnaðarís á reki
skammt frá Siglunesi. Áfram er gert ráð fyrir köldu veðri og hvetur
Landhelgisgæslan sjófarendur til aðgæslu þar sem aðstæður sem þessar skapast.
Lagnaðarís á Siglunesi.