
Finnsk sendinefnd kynnti sér starfsemi Landhelgisgæslunnar
17. september 2026
Í vikunni tók starfsfólk Landhelgisgæslunnar á móti fulltrúum finnskra fyrirtækja og finnska sendiráðsins á Íslandi. Til...

9.8.2023 Kl: 11:18
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar aðstoðaði vísindamenn við að flytja
búnað og mannskap úr Surtsey á dögunum. Undanfarin ár hefur Landhelgisgæslan í
samstarfi við Umhverfisstofnun aðstoðað Surtseyjarfara með ýmsu móti, t.d með
að flytja þá ásamt búnaði til og frá eynni.
Hluti hópsins var fluttur til Vestmannaeyja á meðan aðrir fóru til
Reykjavíkur. Ljósmyndarinn Addi í London tók meðfylgjandi myndir þegar verið var
að ferja Surtseyjarfara og búnað frá eyjunni.
Hópurinn og þyrla Landhelgisgæslunnar í bakgrunni.
Gísli Valur Arnarson, stýrimaður, heldur á búnaði um borð í þyrluna.
Hópurinn hafði töluverðan búnað meðferðis.
Þyrla Landhelgisgæslunnar.
Hluti hópsins.