
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...

1.3.2024 Kl: 12:35
Æfingar skipa stóran sess í störfum áhafna varðskipa Landhelgisgæslunnar. Allir hafa sitt hlutverk og kunna réttu handtökin. Þá er einnig mikilvæg að geta skipt um hlutverk ef svo ber undir.
Skipherrar varðskipanna eru þar engin undantekning og á dögunum brá Páll Geirdal, skipherra, sér í hlutverk dekkstjóra á þyrlubjörgunaræfingu og rifjaði einnig upp gamla takta sem kranamaður.
Páll hafði engu gleymt og æfingin heppnaðist eins og best verður á kosið.
Anton Örn, sigmaður, sígur úr þyrlunni.
Tekið á móti sigmanninum.
Anton Örn og Páll Geirdal.
Um borð í varðskipinu Þór.