
15.3.2024 Kl: 11:42
Ísland
annast þjálfun úkraínskra sjóliðsforingjaefna um borð í varðskipum
Landhelgisgæslunnar. Sjóliðsforingjaefnin hafa undanfarið verið um borð í
varðskipum Gæslunnar þar sem þeir hafa fengið verklega þjálfun í siglingafræði,
eftirliti og aðgerðum á hafi, m.a. leit og björgun.
Verkefnið
er hluti af þjálfunarverkefni Atlantshafsbandalagsins og sér Landhelgisgæsla
Íslands um framkvæmdina í samstarfi við varnarmálaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins.
,,Utanríkisráðuneytið
leitaði til Landhelgisgæslunnar varðandi þjálfun sjóliðsforingjaefnanna og við
tókum þessu mikilvæga verkefni fagnandi. Hingað til lands komu fimm ungir menn
frá Úkraínu sem voru hluti af áhöfn varðskipsins Þórs í síðasta úthaldi. Þeir
hlutu margvíslega þjálfun um borð og fengu að kynnast íslensku sjólagi og
aðstæðum.“ Segir Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar.
Sjóliðsforingjaefnin tóku þátt í verklegum æfingum áhafnarinnar þar
sem áhersla var lögð á leit- og björgun í samstarfi við þyrlusveit. Auk þess
sem þeir fengu að kynnast hvernig eldar eru slökktir um borð í skipum, fengu
leiðsögn í siglingafræðum hér við land og öðluðust reynslu í eftirliti og
aðgerðum á hafi svo fátt eitt sé nefnt.
,,Verkefnið gekk sérlega vel og við
hlökkum til að taka á móti næsta hópi. Þetta er afar mikilvægt framlag Íslands
og Atlantshafsbandalagsins sem við erum stolt að taka þátt í. Það er ánægjulegt
að hægt sé að miðla þeirri miklu þekkingu og reynslu sem er til staðar um borð
í varðskipum Landhelgisgæslunnar með þessum hætti“ Segir Georg
Landhelgisgæslan harmar að andlit sjóliðsforingjaefnanna hafi birst óskyggð á samfélagsmiðlum fyrr í mánuðinum. Gestir sem heimsóttu varðskipið Þór fengu ekki viðunandi leiðbeiningar varðandi myndbirtingu um borð í skipinu og er það á ábyrgð Landhelgisgæslu Íslands.