Fyrir liggur að endurnýja sjókort af þessu svæði með það að leiðarljósi að auka öryggi sjófarenda enn frekar.
26.6.2024 Kl: 10:23
Frá
því um miðjan maí hefur sjómælingabáturinn Baldur verið við dýptarmælingar með
fjölgeislamæli í vestanverðum Húnaflóa en fyrir liggur að endurnýja sjókort af
þessu svæði með það að leiðarljósi að auka öryggi sjófarenda enn frekar.
Kerfisbundnar
fjölgeisladýptarmælingar á svæðinu hófust í fyrra og til að byrja með er lögð
áhersla á hafsvæðið frá Horni að Gjögri og út fyrir Óðinsboða. Mikið er um
grunn og boða á svæðinu og eru mælingar því bæði erfiðar og varasamar og reynir
talsvert á áhöfn Baldurs við slíkar aðstæður. Vegna þessa er svæðið afar
seinlegt til mælinga og er talið að um 3-4 sumur taki að mæla þetta svæði.
Þegar
ekki viðrar til dýptarmælinga þar norður frá sinnir áhöfnin á Baldri mælingum
innar í Húnaflóa ef veður leyfir og hefur Steingrímsfjörðurinn til að mynda að
mestu verið fjölgeislamældur.
Flestar
mælingar sem núgildandi sjókort af svæðinu byggja á eru frá fyrri hluta síðustu
aldar, og er nokkur hluti þeirra mælinga handlóðsmælingar. Dýptartölur sem
notaðar eru í sjókortin eru því ansi gisnar og má því segja að tímabært hafi
verið að hefja endurmælingar á svæðinu með nútíma tækni og nákvæmni.
Með
fjölgeislamælingum má segja að hver steinn á hafsbotni sé mældur og eru frávik
í staðsetninganákvæmni einungis örfáir sentimetrar. Með tilkomu nýrra mælinga
sem settar verða í sjókortin á komandi árum verða sjókortin mun ítarlegri og
nákvæmari og mun öryggi í siglingum á svæðinu þannig aukast til muna.
Hjörtur
F. Jónsson yfirstýrimaður og Stefán Örn Ólafsson yfirvélstjóri við mælingar.
Hjörtur
F. Jónsson yfirstýrimaður undirbýr mælingar á léttbáti.
Hjörtur
F. Jónsson yfirstýrimaður við dýptarmælingar á léttbáti Baldurs.
Áhöfn
Baldurs æfir björgun manna úr sjó með Neyðarnótinni Hjálp.
Áhöfnin
á Baldri sjósetur léttbát.
Sindri
Skarphéðinsson bátsmaður og Stefán Örn Ólafsson yfirvélstjóri við æfingar á
slöngubáti Baldurs.
Flak
sem fannst í Steingrímsfirði í byrjun júní. Talið vera að Jóni Pétri ST-21 sem
fargað var í firðinum á níunda áratug síðustu aldar.
Guðmundur
Birkir Agnarsson skipstjóri undirbýr köfun til að skoða mælingabúnað undir
Baldri.
Yfirlit
yfir mælingar í Húnaflóa sumarið 2023 og það sem af er sumrinu 2024.