Stefnt er að því að sigla með hvalhræið djúpt út af Snæfellsnesi þar sem því verður sleppt utan sjávarfallastrauma.
27.11.2024 Kl: 10:30
Áhöfnin á varðskipinu Þór fjarlægði hvalhræ sem var á reki í
miðjum Hvalfirði í gærkvöld. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk vitneskju hvalhræið
síðdegis í gær eftir að vegfarandi tilkynnti lögreglu um málið.
Varðskipið Þór
var sent á staðinn og fann hvalinn laust fyrir klukkan tíu gærkvöld. Vel gekk
að undirbúa hræið fyrir flutning . Stroffu var komið utan um sporð þess og að
því búnu var siglt með það út fjörðinn.
Stefnt er að því að sigla með hvalhræið
djúpt út af Snæfellsnesi þar sem því verður sleppt utan sjávarfallastrauma.
Stroffu var komið utan um sport hvalhræsins.
Unnið að því að undirbúa hræið fyrir flutning.
Um borð í varðskipinu Þór.