
Áhöfnum varðskipanna vel tekið
10. mars 2026
Heimsóknir varðskipa Landhelgisgæslunnar vegna aldarafmælisins halda áfram. Um helgina heimsótti varðskipið Þór Flateyri...
28.11.2024 Kl: 9:35
Áhöfnin á varðskipinu Þór er nú við eftirlit í lögsögunni. Æfingar
skipa stóran sess í störfum áhafnarinnar og á dögunum fór fram reykköfunaræfing
um borð í Hringi SH 153 sem var við bryggju í Grundarfjarðarhöfn. Æfingin fór
fram á vinnsludekkinu og var með þeim hætti að fjögur teymi voru send inn til
reykköfunar og áttu að finna dúkku í rými sem fyllt var af reyk.
Æfing sem þessi er mikilvæg ef áhöfnin þarf að bregðast við
eldi um borð í skipi og sérstaklega þýðingarmikið að rifja upp réttu handtökin
reglulega.