Reykköfunaræfing á vinnsludekkinu

27. nóvember, 2024

Á dögunum fór fram reykköfunaræfing um borð í Hringi SH 153 sem var við bryggju í Grundarfjarðarhöfn.

28.11.2024 Kl: 9:35

Áhöfnin á varðskipinu Þór er nú við eftirlit í lögsögunni. Æfingar
skipa stóran sess í störfum áhafnarinnar og á dögunum fór fram reykköfunaræfing
um borð í Hringi SH 153 sem var við bryggju í Grundarfjarðarhöfn. Æfingin fór
fram á vinnsludekkinu og var með þeim hætti að fjögur teymi voru send inn til
reykköfunar og áttu að finna dúkku í rými sem fyllt var af reyk.

Æfing sem þessi er mikilvæg ef áhöfnin þarf að bregðast við
eldi um borð í skipi og sérstaklega þýðingarmikið að rifja upp réttu handtökin
reglulega. 

Reykköfunaræfing