Tilkomumikið slökkvikerfi Freyju prófað

6. janúar, 2025

Varðskipið Freyja er vel tækjum búið og þar sem meðal annars að finna öflugar slökkvibyssur sem eru ákaflega afkastamiklar.

6.1.2025 Kl: 13:13

Varðskipið Freyja hefur reynst sérlega vel þau rúmu þrjú ár
sem það hefur verið í flota Landhelgisgæslunnar. Skipið er vel tækjum búið og
þar sem meðal annars að finna öflugar slökkvibyssur sem eru ákaflega
afkastamiklar. Þær geta dælt um 7200 rúmmetrum af sjó á klukkustund og kastað
vatninu um 220 metra frá skipinu.

Þennan búnað þarf reglulega að prófa og á dögunum voru slökkvibyssurnar
ræstar sem er mikilvægt til að viðhalda þjálfun áhafnarinnar auk þess að kanna
virkni búnaðarins.

Dælurnar eru sérlega kraftmiklar og knúnar áfram af
aðalvélum skipsins. Mikilvægt er að áhöfnin geti brugðist við ef eldur kemur
upp í skipum, eða á hafnarsvæðum um allt land.

Dróni varðskipsins var á lofti og fangaði þessar glæsilegu
myndir.

FiFi

Freyja-FifiVarðskipið Freyja