
Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir við Hörpu í dag
26. september 2026
Í tilefni af 100 ára afmælisveislu Landhelgisgæslu Íslands mun þyrla stofnunarinnar lenda fyrir framan Hörpu í dag klukk...

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á mesta forgangi auk sjóbjörgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar á þriðja tímanum í dag vegna leka sem kom upp um borð í fiskibáti sem staddur var vestur af Akranesi.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar ræsti þegar í stað út viðbragðsaðila auk þess sem skip í grenndinni voru beðin um að halda á vettvang. Tveir voru um borð í bátnum. Björgunarskip Landsbjargar á Akranesi var komið fljótt á staðinn og vel gekk að koma í veg fyrir lekann.
Taug var komið fyrir á milli fiskiskipsins og björgunarskipsins sem dregur nú bátinn til hafnar. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þá afturkölluð.