Norður Víkingi lokið

4. september, 2026

Varnaræfingunni Norður-Víkingur 2026 lauk í vikunni þar sem æfðar voru varnir Íslands með aðgerðum á sjó, landi og í lofti. Æfingin byggir á tvíhliða varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna en einnig voru æfðar varnaráætlanir og viðbragð Atlantshafsbandalagsins undir stjórn herstjórnarinnar í Norfolk.

Auk Íslands og Bandaríkjanna tók liðsafli frá Belgíu, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Kanada, Noregi,  Svíþjóð og Þýskalandi  þátt í æfingunni auk fjölmargra skipa úr fastaflota Atlantshafsbandalagsins. Áætlað er að um 1200 manns hafi tekið þátt í æfingunni sem stóð yfir í tvær vikur.

„Æfingin er mikilvægur liður í að treysta og styrkja viðbragð og varnir, þar sem reynir að gagnkvæmar varnarskuldbindingar en gefur okkur hér heima og erlendum liðsafla færi á að æfa saman og kynnast þeim aðstæðum sem hér eru til staðar,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra.

Æfðar voru varnir mikilvægra innviða, eftirlit og varnir á sjóleiðum á Norður-Atlantshafi, samhæfing milli íslenskra viðbragðsaðila og erlends herliðs auk æfinga í leit og björgun. Fjölmargir innlendir viðbragðsaðilar komu að undirbúningi og framkvæmd æfingarinnar m.a. varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins, Landhelgisgæslan, ríkislögreglustjóri, almannvarnir, og  heilbrigðisstofnanir.

Fleiri Fréttir