
Tilkynningar til sjófarenda, útgáfa 4 – 2026
30. apríl 2026
Fyrr í dag, fimmtudaginn 30.apríl voru Tilkynningar til sjófarenda sendar áskrifendum og birtar á vef Landhelgisgæslu Ís...
Áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, hefur stundað öflugt eftirlit á hafsvæðinu umhverfis Ísland undanfarnar vikur.
Á miðvikudag var farið í eftirlit austur af landinu og jafnframt flogið yfir Síldarsmuguna þar sem 14 íslensk fiskiskip voru að veiðum. Alls voru rúmlega 40 skip á svæðinu þegar TF-SIF flaug þar yfir, þar af voru 3 grænlensk og 25 rússnesk, bæði fiskiskip og þjónustuskip.

