

Fulltrúi bandarísku strandgæslunnar (US Coast Guard) gagnvart Íslandi, með aðsetur í Danmörku, commander Joey Herd heimsótti Landhelgisgæsluna ásamt captain John Fay varnarmálafulltrúa bandaríska sendiráðsins á Íslandi til að ræða samstarf stofnananna sem á sér margra áratuga hefð og hefur verið mjög farsælt á svið leitar og björgunar á hafinu, þjálfunar, tæknilegrar framþróunar, upplýsingaskipa o.fl.
Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs, og Auðunn F. Kristinsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar, áætlana og þróunar hjá Landhelgisgæslunni tóku á móti þeim í höfuðstöðvum Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð.
Síðasta sumar voru tveir nemar úr liðsforingjaskóla Strandgæslunnar í starfsnámi hjá Landhelgisgæslunni, m.a. um borð í varðskipunum og er áætlað að tveir nemendur komi í starfsnám í sumar.