

Ráðstefna vinnuhópa North Atlantic Coast Guard Forum, hófst á Reykjavík Natura í gær, þriðjudag. North Atlantic Coast Guard Forum eru samtök strandgæslustofnana á Norður Atlantshafi. Um hundrað og tuttugu manns taka þátt í ráðstefnunni að þessu sinni.
Fyrir Íslands hönd sitja fulltrúar Landhelgisgæslunnar ráðstefnuna. Landhelgisgæslan tók við formennsku í ráðinu í fyrra. Yfirskrift fundarins að þessu sinni er; Tækni og landhelgisgæsla, þróun og nýjar áskoranir.
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, setti fundinn við upphaf hans í gær og ítrekaði mikilvægi samvinnu ríkjanna og ræddi helstu áskoranir Landhelgisgæslunnar á hafinu umhverfis landið.
Stefnumál samtakanna eru unninn innan sjö vinnuhópa sem eru; 1. Öryggismál á hafinu. 2. Smygl eiturlyfja. 3. Ólöglegir innflytjendur. 4. Fiskveiðieftirlit. 5. Leit og björgun. 6. Samvinna á sviði tækni. 7. Mengunarvarnir
Landhelgisgæslan var einn af stofnfélögum samtakanna en að þeim standa sextán stofnanir sem annast strandgæslustörf þjóðanna sem þau tilheyra. Þessar þjóðir eru; Belgía, Bretland, Bandaríkin, Danmörk, Finnland, Frakkland, Holland, Ísland, Írland, Kanada, Lettland, Noregur, Portúgal, Spánn, Svíþjóð og Þýskaland. Í mörgum tilvikum eru þetta sjóherir landanna, í sumum tilvikum strandgæslur sem heyra undir sjóherina og í enn öðrum sérstakar strandgæslustofnanir.
Þetta er í annað skipti sem Landhelgisgæslan fer með formennsku í samtökunum en stofnunin hafði það hlutskipti einnig árið 2009 á mótunarárum þeirra og þess samstarfs sem í framhaldinu hefur verið þróað.
Tilgangur samtakanna er að greiða fyrir samvinnu ofangreindra stofnana. Í því felst meðal annars að samtökin vinna að upplýsingaskiptum á hinum ýmsu sviðum. Samtökin voru upphaflega stofnuð til að gæta að auknu öryggi á Norður Atlantshafi.

Ráðstefnunni lýkur á fimmtudag.