

Fyrr í dag, fimmtudaginn 30.apríl voru Tilkynningar til sjófarenda sendar áskrifendum og birtar á vef Landhelgisgæslu Íslands, sjá hér.
Tilkynnt er um breytta ljósgeira á Langanesvita í Arnarfirði. En það er talið nauðsynlegt með tilliti til siglingaöryggis á innanverðum Arnarfirði.
Tilkynnt er um leiðréttingu á heiti radarmerkis í Vitaskrá, radarmerki utan Breiðdalsvíkur.
Þessu til viðbótar er tilkynnt um nýja þjónustu þar sem Siglingaviðvaranir sem stjórnstöð Landhelgisgæslu Íslands sendir út í fjarskiptakerfi sjófarenda, bæði á tali (talstöð) og fjarrita (NAVTEX), eru nú einnig birtar á vef Landhelgisgæslunnar.
Stjórnstöðin, sem er með sólarhringsvakt alla daga ársins, er m.a. falið það verkefni að vara sjófarendur við hvers kyns hættu sem steðjar að öruggri siglingu sjófara.
Þetta er viðbót við þjónustu sem fellur undir alþjóðasamþykktir um s.k. GMDSS (Global Maritime Distress and Safety System) en það er neyðar- og öryggisþjónusta fyrir sjófarendur.
Upplýsingar um Siglingaviðvaranir má finna hér.
Minnum á fyrri tilmæli til sjófarenda og annarra hagsmunaaðila að tilkynna strax til Landhelgisgæslunnar, t.d. í netfangið sjokort@lhg.is eða með öðrum hætti, verði þeir varir við eða uppgötvi siglingahættur sem eru ekki sýndar í sjókortum, skekkjur í sjókortum eða öðrum leiðbeiningum fyrir sjófarendur.
Á vef Landhelgisgæslunnar má finna ýmsan fróðleik eins og;
Leiðréttingar í sjókort eru birtar í Tilkynningum til sjófarenda.
Vitaskrá er uppfærð samhliða Tilkynningum til sjófarenda.
Kortaskrá sem inniheldur upplýsingar um sjókort, handbækur og sjókortasala, er uppfærð reglulega.
Sjávarfallatöflur eru gefnar út fyrir hvert ár, aðgengilegur á vefnum.