

Áhöfnin á varðskipinu Freyju bauð íbúum Norðurþings um borð í skipið um helgina í tilefni 100 ára afmælis Landhelgisgæslunnar. Húsvíkingurinn Einar H. Valsson, skipherra á Freyju, tók á móti gestum ásamt áhöfn skipsins sem sýndi skipið og búnað þess.
Nemendur í leik- og grunnskólanum var boðið að koma um borð á fimmtudag og á laugardag var skipið opið fyrir gesti og gangandi.
Fjölmargir nýttu sér tækifærið og skoðuðu skipið. Þeirra á meðal var hluti sveitarstjórnar Norðurþings sem fékk kynningu á verkefnum Landhelgisgæslunnar og störfum áhafnarinnar á Freyju.
Varðskip Landhelgisgæslunnar halda áfram að heimsækja sveitarfélög vítt og breitt um landið í tilefni afmælisins en vegna eðli starfsemi stofnunarinnar eru heimsóknirnar ákveðnar og auglýstar með skömmum fyrirvara.













