Leitar- og björgunarmál rædd á ráðstefnu í Reykjavík

7. maí, 2026

Landhelgisgæslan, samtök útgerða skemmtiferðaskipa á norðurslóðum (AECO), færeyska strandgæslan auk kanadísku strandgæslunnar stóðu í vikunni fyrir ráðstefnu um leitar- og björgunarmál á norðurslóðum (e. Joint Arctic SAR Event). Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, setti ráðstefnuna og ítrekaði mikilvægi þess að samtarf á þessu sviði milli þessara ólíku aðila væri nauðsynlegt.

Á ráðstefnunni flutti fjölbreyttur hópur sérfræðinga, þar á meðal rekstraraðilar skemmtiferðaskipa, fulltrúar sendiráða, tæknisérfræðingar auk sérfræðingar í leitar- og björgunarmálum áhugaverð erindi.

Afar mikilvægt er að þessir aðilar hittist með reglubundnu millibili og beri saman bækur sínar þar sem leitar- og björgunarmál á svæðinu eru til umfjöllunar.

Umræður vikunnar undirstrikuðu mikilvægi samstarfs og aukinnar upplýsingamiðlunar. Með samráðsvettvangi sem þessum er áfram unnið að því að auka öryggi á norðurslóðum.

Myndir: AECO

Fleiri Fréttir