
Norður Víkingi lokið
4. september 2026
Varnaræfingunni Norður-Víkingur 2026 lauk í vikunni þar sem æfðar voru varnir Íslands með aðgerðum á sjó, landi og í lof...

Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, fór í hefðbundið gæsluflug á Reykjaneshrygg á föstudag, bæði til að fylgjast með skipum í íslensku efnahagslögsögunni en einnig til að kanna hvort þau erlendu fiskiskip sem voru á veiðum suðvestur af landinu væru réttu megin við lögsögumörkin.
Tíu rússnesk fiskiskip reyndust að úthafskarfaveiðum rétt við lögsögumörkin en öll voru utan íslensku efnahagslögsögunnar. Um helgina bættist eitt skip í hópinn. Á undanförnum árum hefur verið algengt að erlend fiskiskip stundi úthafskarfaveiðar á þessum slóðum á Reykjaneshrygg en í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar er vel fylgst með að veiðarnar fari fram utan íslenskrar lögsögu auk þess sem áhöfnin á TF-SIF flýgur reglulega yfir svæðið til eftirlits.
