Fjölmenn leitar- og björgunaræfing Landhelgisgæslunnar og danska sjóhersins á Faxaflóa

13. maí, 2026

Landhelgisgæslan og danski sjóherinn efndu til umfangsmikillar leitar- og björgunaræfingar á Faxaflóa í gær. Áhöfnin á varðskipinu Freyju, tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, varðstjórar í stjórnstöðinni í Skógarhlíð auk áhafnarinnar á sjómælingaskipinu Baldri tóku þátt fyrir hönd Landhelgisgæslunnar. Áhöfnin á Hvidbjörnen tók þátt af hálfu danska sjóhersins.

Æfingin hófst á því að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning um árekstur farþegaskips með 27 innanborðs á Faxaflóa og mikill leki væri kominn að skipinu. Áhöfnin á Freyju og þyrlusveit héldu með hraði á vettvang auk þess sem stjórnstöð Landhelgisgæslunnar óskaði aðstoðar frá áhöfn Hvidbjörnen.

Varðskipið Freyja gegndi hlutverki vettvangsstjóra á æfingunni og bar ábyrgð á samhæfingu aðgerða. Verkefnin voru fjölbreytt; stöðva þurfti leka um borð í skipinu, flytja slasaða, finna björgunarbát á reki og leita að týndum farþegum. Farþegar voru jafnframt fluttir um borð í danska skipið þar sem læknir og hjúkrunarfræðingur úr áhöfninni hlúðu að þeim. Þá hífðu þyrlur ,,slasaða“ bæði úr sjó og af skipinu.

Mjög vel gekk að samhæfa aðgerðir og leysa þær fjölmörgu áskoranir sem viðbragðsaðilar standa frammi fyrir ef atburður af þessum toga á sér stað.

Samstarf Landhelgisgæslunnar og danska sjóhersins byggir á áratugalangri góðri samvinnu sem meðal annars felst í samæfingum og samstarfi á sviði leitar og björgunar í Norður-Atlantshafi.

Fleiri Fréttir