

Landhelgisgæsla Íslands tekur ómannað loftfar til notkunar í vikunni sem ætlað er til eftirlits á hafsvæðinu umhverfis landið næstu mánuði. Loftfarið verður gert út frá Hornafjarðarflugvelli og er af gerðinni Tekever AR5. Það verður nýtt við löggæslu, leit, björgun og mengunareftirlit á hafsvæðinu umhverfis Ísland.
Tilkoma loftfarsins mun styrkja stöðumynd Landhelgisgæslunnar á hafinu umhverfis Ísland og efla öryggi við leit og björgun á sjó.
Um er að ræða samstafsverkefni EMSA, Siglingaöryggisstofnunar Evrópu, og Landhelgisgæslunnar. Verkefnið er unnið í samstarfi við Samgöngustofu, Isavia, Avians, ECOI og tollasvið Skattsins. Það er fjármagnað af Evrópusambandinu og skipulagt í samstarfi við EMSA, sem annast samninga við tæknifyrirtækið Tekever. Þetta er í þriðja sinn sem ómannað loftfar er gert út í þessum tilgangi frá Íslandi með stuðningi EMSA.
Gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki í september.
Fyrirkomulag flugsins:
Loftfarið verður staðsett á Hornafirði. Landhelgisgæslan mun hafa yfirumsjón með eftirlitsflugum loftfarsins en sérfræðingar frá Tekever munu annast stjórnun þess.
Helstu upplýsingar:
Heildstætt eftirlitskerfi:
Tilkoma loftfarsins hér á landi er til viðbótar við aðra reglubundna þjónustu frá EMSA sem Landhelgisgæslan nýtir sér, þ.m.t. CleanSeaNet gervihnattavöktun, sem nýtt er til að greina olíumengun og fylgjast með skipaumferð. Með því að sameina gervihnattagögn og rauntímavöktun ómannaða loftfarsins næst betri vöktun innan íslensku efnahagslögsögunnar.
Upplýsingar fyrir flugmenn:
Vakin er athygli á því að búast má við flugi loftfarsins innan þeirra eftirlitssvæða sem tilgreind eru á meðfylgjandi korti:
