Eldur kom upp í fiskibát á Breiðafirði

3. júní, 2026

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk tilkynningu á tólfta tímanum í dag um að eldur væri í vélarrúmi fiskibáts sem staddur var á Breiðafirði. Einn maður var um borð í bátnum. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út á mesta forgangi ásamt áhöfn Bjargar, björgunarskips Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Rifi. Einnig voru skip og bátar í grenndinni beðin um að halda á vettvang. Skömmu eftir að tilkynningin barst, bárust upplýsingar til stjórnstöðvar Gæslunnar um að búið væri að loka vélarrúmi bátsins og ræsa slökkvikerfi.

Fyrsti nálægi báturinn kom fljótt á vettvang og stuttu síðar var björgunarskipið og þyrla Landhelgisgæslunnar komin á staðinn. Sigmaður og læknir þyrlusveitarinnar sigu um borð í bátinn til að meta aðstæður og huga að skipverjanum um borð en hann varð fyrir óhappi þegar eldurinn kom upp. Að því búnu fór skipverjinn um borð í björgunarskipið og fiskibáturinn var tekinn í tog til hafnar á Rifi. Gert er ráð fyrir að þangað verði komið laust fyrir klukkan fjögur.

Fleiri Fréttir