
Landhelgisgæslan annaðist útkall á Grænlandi
21. ágúst 2026
Þyrlur Landhelgisgæslunnar eru þannig búnar að þær geta annast sjúkraflug langt frá landi ef svo ber undir. Slík flug er...

Fjölmenni lagði leið sína á opið hús í flugskýlið okkar á Reykjavíkurflugvelli í gær sem haldið var í tilefni af 100 ára afmæli Landhelgisgsæslu Íslands.
Starfsfólk Landhelgisgæslunnar tók á móti gestum og kynnti fjölbreytta starfsemi stofnunarinnar sem fram fer um allt land.
Gestum gafst m.a. kostur á að skoða þyrlur og flugvél Landhelgisgæslunnar sem og margvíslegan annan búnað sem notaður er í starfseminni svo sem báta, köfunarbúnað, sprengjueyðingarbúnað, sjókort, ýmis mælitæki, og margt fleira áhugavert.
Takk fyrir okkur!













