

Flugsafn Íslands heldur sinn árlega flugdag á morgun, laugardaginn 20. júní, milli 13 og 16 á Akureyrarflugvelli.
Í tilefni af 100 ára afmæli Landhelgisgæslu Íslands gefst gestum kostur á að skoða þyrlur Landhelgisgæslunnar og kynna sér starfsemi þyrlusveitarinnar. Á Flugsafninu eru einnig varðveittar björgunarþyrlurnar TF-SIF og TF-LIF, og björgunar- og eftirlitsflugvélin TF-SYN.
Við þetta tilefni mun Benóný Ásgrímsson fyrrum þyrluflugstjóri Landhelgisgæslunnar rekja upphaf og sögu þyrlusveitarinnar í stuttu máli kl. 13:30. Benóný er einn reynslumesti flugstjóri landsins í leitar- og björgunarflugi og á að baki 50 farsæl starfsár hjá Landhelgisgæslunni.
Að loknu ávarpi Benónýs hefst flugsýningin með látum, meðal annars með atriði frá Landhelgisgæslunni.
Landhelgisgæslan vonast til að sem flestir heimsæki Flugsafnið á laugardaginn, njóti dagsins og fagni þessum tímamótum með okkur.