
Sjávarfallaalmanak 2026 – leiðrétting
2. júlí 2026
Villa er í upplýsingum júlí mánaðar. Dýpiskúrfa hefur aflagast í vinnslu gagna þannig að síðasta vika mánaðarins sýnir e...

1.11.2023 Kl: 12:30
Áhafnir varðskipanna Þórs og Brimils héldu sameiginlega æfingu í Þórshöfn í Færeyjum í gær. Einn hluti æfingarinnar gekk út á að taka Brimil á síðu Þórs og færa það að bryggju.
Ákveðið var að æfa innan flutningahafnarinnar í Þórshöfn þar sem Þór lagðist tvívegis utan á Brimil og færði það að bryggjunni. Auk æfinganna var búnaður beggja skipa skoðaður af áhöfnunum tveimur þar sem færi gafst á að bera saman bækur.
Eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi gekk áhöfn Þórs vel að leggja Brimil að bryggju við góðar aðstæður í flutningahöfninni.
https://youtu.be/6SA31WOgusc
Þór og Brimil í flutningahöfninni í Þórshöfn í gær.
Æfingin gekk vel.