Baldur mælir í Húnaflóa

16. júní, 2026

Eftirlits- og sjómælingabáturinn Baldur hefur nú hafið árlegt úthald við dýptarmælingar vegna sjókortagerðar. Úthaldið hófst þann 11. maí s.l. og eftir að hafa tekið þátt í sameiginlegri leitar- og björgunaræfingu Landhelgisgæslunnar og danska sjóhersins á Faxaflóa hélt Baldur til mælinga í Breiðafirði í um viku tíma en þaðan fór hann svo til mælinga norður í Húnaflóa.

Síðastliðin þrjú sumur hefur Baldur að mestu verið við dýptarmælingar í Húnaflóanum þar sem fyrirhugað er að uppfæra sjókort af svæðinu með nýjum og nákvæmum dýptargögnum úr fjölgeislamæli. Dýpisupplýsingar í gildandi sjókortum af svæðinu uppfylla ekki nútíma kröfur til sjókortagerðar og siglingaöryggis, enda sumar hverjar gamlar handlóðsmælingar. Brýn þörf er því fyrir endurmælingar og uppfærslu sjókorta.

Baldur er ekki eingöngu gerður út til sjómælinga heldur sinnir hann einnig eftirliti og löggæslu á miðunum eftir þörfum ásamt leit og björgun, sem og ýmsum öðrum tilfallandi verkefnum. Í apríl síðastliðnum voru 35 ár síðan Baldri var hleypt af stokkunum hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar en hann var smíðaður sérstaklega til sjómælinga og eftirlitsstarfa á grunnslóðinni fyrir Landhelgisgæsluna.

Fleiri Fréttir