Fyrsti Covid-19 sjúkraflutningur Landhelgisgæslunnar
Áhöfnin á TF-GRO flutti COVID-19 sjúkling frá Ísafirði til Reykjavíkur.
19.4.2020 Kl: 10:35
Áhöfnin á TF-GRO, þyrlu Landhelgisgæslunnar, flutti Covid-19 sjúkling frá Ísafirði til Reykjavíkur í gærkvöld. Þetta var fyrsta sjúkraflug Landhelgisgæslunnar af þessum toga. Upphaflega stóð til að sjúkraflugvél annaðist flutninginn en sökum þoku reyndist ekki unnt að lenda á flugvellinum á Ísafirði. Því varð að kalla þyrlusveit Landhelgisgæslunnar út.
Töluverðan undirbúning þurfti fyrir flugið, meðal annars var sérstakt flutningshylki haft með í för til Ísafjarðar og farið ítarlega yfir alla verkferla.
Þegar þyrlan lenti á Ísafirði fóru þyrlulæknir og stýrimaður með hylkið á sjúkrahúsið og þurftu að klæðast hlífðarbúnaði áður en inn var haldið. Sjúklingurinn var undirbúinn fyrir þyrluflugið og færður yfir í flutningshylkið.
Hylkið er afar mikilvægt fyrir sjúkraflutning sem þennan því ef rétt er staðið að undirbúningi á engin smithætta að vera fyrir utan það. TF-GRO flutti sjúklinginn á Landspítalann í Fossvogi en þar lenti þyrlan á þyrlupalli spítalans á ellefta tímanum í gærkvöld.
Tómas Vilhjálmsson, Viðar Magnússon og Guðmundur Ragnar Magnússon undirbúa sjúkraflugið.
Sjúklingurinn fluttur um borð í TF-GRO.
Sigurður Ásgeirsson, flugstjóri á TF-GRO.