Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 1. janúar 2019, sæmdi forseti Íslands 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu.
1.1.2019 Kl: 20:10
Forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson, sæmdi í dag Georg Kristinn Lárusson, forstjóra Landhelgisgæslunnar, heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Georg var einn fjórtán Íslendinga sem var þess heiðurs aðnjótandi að veita viðurkenningunni viðtöku en riddarakrossinn hlaut hann fyrir störf í opinbera þágu. Landhelgisgæslan óskar öllum orðuhöfum hjartanlega til hamingju en þeir eru:
Agnes Anna Sigurðardóttir framkvæmdastjóri, Dalvík, riddarakross fyrir framlag til þróunar atvinnulífs í heimabyggð
Árni Magnússon fyrrverandi skólastjóri, Garðabæ, riddarakross fyrir störf á vettvangi félags- og skólamála
Björg Thorarensen prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir kennslu og rannsóknir á sviði lögfræði
Georg Lárusson forstjóri, Kópavogi, riddarakross fyrir störf í opinbera þágu
Guðríður Ólafs Ólafíudóttir fyrrverandi formaður Sjálfsbjargar, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til velferðar- og mannúðarmála
Guðrún Sveinbjarnardóttir fornleifafræðingur, Bretlandi, riddarakross fyrir framlag til fornleifarannsókna
Haraldur Briem fyrrverandi sóttvarnarlæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi heilsuverndar og lýðheilsu
Kristín Aðalsteinsdóttir fyrrverandi prófessor, Akureyri, riddarakross fyrir störf á vettvangi menntavísinda
Margrét Frímannsdóttir fyrrverandi alþingismaður, Kópavogi, riddarakross fyrir störf í opinbera þágu
Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar og jafnréttismála
Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til mannréttindamála og réttindabaráttu
Tómas Knútsson vélvirkjameistari og stofnandi Bláa hersins, Sandgerði, riddarakross fyrir framlag á vettvangi umhverfisverndar
Valdís Óskarsdóttir kvikmyndagerðarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar kvikmyndagerðar
Þórhallur Sigurðsson leikari og tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar menningar
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sæmdi Georg Kristinn Lárusson, forstjóra Landhelgisgæslunnar, heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Meðfylgjandi mynd var tekin síðasta sumar þegar forsetinn ferðaðist með varðskipinu Þór.