Kortavefsjá íslenskra sjókorta opnuð

Landhelgisgæslan opnaði í dag aðgang að vefsjá með íslenskum sjókortum.

  • Skjamynd_sjokortavefsja

4.12.2019 Kl: 12:35

Landhelgisgæslan opnaði í dag aðgang að vefsjá með íslenskum sjókortum. Stofnunin hefur á liðnum mánuðum átt í góðu samstarfi við Landmælingar Íslands og notið liðsinnis starfsmanna Landmælinga við að hrinda þessu verkefni í framkvæmd.

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Eydís Líndal, forstjóri Landmælinga Íslands, gerðu með sér samning í fyrra sem fól í sér samstarf stofnananna um aukið aðgengi almennings að rafrænum kortaupplýsingum og endurbættum kortagögnum af strandlínu landsins.

Opnun kortavefsjárinnar er liður í þessu aukna samstarfi. Vefsjána má finna hér: http://gis.lmi.is/sjokort/ Sjókortin sem þar eru aðgengileg eru rastamyndir af íslensku sjókortunum eins og staðan var á útgáfunni á miðju þessu ári. Tekið skal fram að sjókortin í vefsjánni eru ekki leiðrétt samkvæmt Tilkynningum til sjófarenda.

Það er von Landhelgisgæslunnar og Landmælinga Íslands að samfélagið hafi bæði gagn og gaman af þessum aukna aðgangi að sjókortum.

Hopurinn

Starfsmenn Landhelgisgæslu Íslands og Landmælinga Íslands.


2292222359469987455_IMG_2837Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, þakkaði starfsfólki sjómælingadeildar og Landmælinga Íslands fyrir afar vel unnið störf.

4691395335906479716_IMG_2841Eydís Líndal, forstjóri Landmælinga Íslands, sagði vefsjána opna ýmsa möguleika.

4840502572445397352_IMG_2845Árni Þór Vésteinsson, yfirmaður sjómælinga.

4559303302371020081_IMG_2847

Fjölmenni var við opnun vefsjárinnar.

3115905048053798478_IMG_2850Árni Þór Vésteinsson opnaði vefsjána formlega.

IMG_7267_1575463021070Eydís Líndal og Georg Kr. Lárusson við undirskrift samningsins frá því í fyrra sem fól í sér aukið samstarf Landhelgisgæslunnar og Landmælinga Íslands.