Mannbjörg á Breiðafirði
Þremur bjargað um borð í fiskiskip eftir að togbátur sökk.
5.11.2019 Kl: 12:56
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst
neyðarkall frá togbátbát sem staddur var norður af Stykkishólmi á tólfta
tímanum í dag. Þrír voru um borð. Þyrla Landhelgisgæslunnar var þegar í stað
kölluð út sem og sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Þá voru skip og bátar í grenndinni beðnir um að halda á vettvang. Klukkan 12:08
var búið að bjarga mönnunum, sem komnir voru í björgunarbát, af nálægu
fiskiskipi sem kom á staðinn. Bátur mannanna er sokkinn. Þyrla
Landhelgisgæslunnar var þá afturkölluð. Báturinn datt
úr tilkynningarskyldu hjá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og skömmu
síðar barst neyðarskeyti frá honum. Þá sást neyðarblys á lofti. Samvinna
björgunaraðila og skipa á svæðinu var til algjörrar fyrirmyndar en búið var að
bjarga mönnunum um borð í fiskiskipið rúmum hálftíma eftir að neyðarkallið
barst.