Sjúkraflug í svartaþoku

Þyrlan TF-GNA sótti sjúkling til Vestmannaeyja

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst í hádeginu í gær beiðni frá Heilbrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum um aðstoð þyrlu vegna sjúklings sem þurfti nauðsynlega að komast upp á land í aðgerð. Vegna þoku og leiðindaveðurs var ekki unnt að senda sjúkraflugvél til Eyja. 

Þyrlan TF-GNA fór í loftið klukkan 12.55. Skyggnið á Vestmannaeyjaflugvelli var svo lélegt að ákveðið var að lenda á Hamarsvegi, vestan við flugbrautina, á svonefndum Háaleitishamri. Þyrlan lenti þar klukkan 13.38. Stýrimaður og flugvirki fóru út og stöðvuðu umferð þar til starfsfólk Isavia kom á vettvang og lokaði veginum með slökkvibíl og flugbrautarbíl. Skömmu síðar kom sjúkrabíll með sjúklinginn. Eftir skoðun þyrlulæknis var sjúklingurinn svo færður um borð í þyrluna. 

TF-GNA lagði svo af stað frá Eyjum kl. 13.52 og lenti hún á Reykjavíkurflugvelli hálftíma síðar. Þar beið sjúkrabíll sem flutti sjúklinginn á Landspítalann. 

Mynd: Heilbrigðisstofnunin Vestmannaeyjum.