
Opið hús í flugskýli Landhelgisgæslunnar á laugardag
8. júní 2026
Í tilefni af 100 ára afmæli Landhelgisgsæslu Íslands bjóðum við landsmönnum til opins húss í flugskýli okkar við Nauthól...
23.9.2020 Kl: 11:34
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á þriðja
tímanum nótt til að sækja veikan skipverja af fiskiskipi. Skipið var þá statt
norður af Melrakkasléttu.
TF-EIR tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 3:31
og hafði lokið að hífa skipverjann um borð í þyrluna tveimur tímum síðar.
Þyrlan
lenti svo á Reykjavíkurflugvelli laust fyrir klukkan átta í morgun. Þar beið sjúkrabíll
sem flutti manninn á Landspítalann.