TF-LIF sótti veikan sjómann

Skipverji á Hrafni Sveinbjarnarsyni GK-225 fluttur á sjúkrahús í Reykjavík

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, var kölluð út seint í gærkvöld til að sækja veikan skipverja af Hrafni Sveinbjarnarsyni GK-225. Skipið var þá að veiðum um 17 sjómílur vestur af Surtsey. Á tólfta tímanum hafði skipstjórinn samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar til að fá samband við þyrlulækni vegna mannsins. Ákveðið var í framhaldinu að senda þyrluna eftir skipverjanum og fór hún í loftið rétt upp úr miðnætti. Um fjörutíu mínútum síðar var TF-LIF komin að skipinu. Maðurinn var rólfær og því reyndist ekki þörf á að taka hann upp í sjúkrabörum. Þyrlan lenti svo á Reykjavíkurflugvelli klukkan 1.14. Þar beið sjúkrabíll sem flutti manninn á Landspítalann.  

Í fyrradag var TF-LIF kölluð út vegna manns sem hafði slasast á hendi um borð í loðnuveiðiskipinu Víkingi AK-100. Skipið var þá á miðunum um tuttugu sjómílur norðvestur af Svörtuloftum, yst á Snæfellsnesi. Maðurinn var ekki talinn mjög alvarlega slasaður en vissara þótti samt að senda þyrluna eftir honum. Hún fór í loftið klukkan hálffimm síðdegis og var komin fjörutíu mínútum síðar að skipinu. Um stundarfjórðung tók að koma sjúklingnum um í þyrluna en aðstæður á vettvangi voru góðar. TF-LIF lenti við Landspítalann í Fossvogi um kvöldmatarleytið.