Þrjú rússnesk skip innan efnahagslögsögunnar

31. ágúst, 2021

-Landhelgisgæslan fylgdist með ferðum þriggja rússneskra skipa innan íslensku efnahagslögsögunnar

31.8.2021 Kl: 13:22

Stjórnstöðvar
Landhelgisgæslunnar í Reykjavík og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli urðu
varar við umferð þriggja óþekktra skipa innan íslensku efnahagslögsögunnar en
utan landhelginnar fyrr í mánuðinum. Tvö skipanna voru austan við landið og
eitt á siglingu norður af landinu.

Varðskipið Þór fylgdist með ferðum eins skipsins í ratsjá og þyrlur
Landhelgisgæslunnar voru í tvígang sendar austur fyrir land til að bera kennsl
á hin skipin tvö. Athugun Landhelgisgæslunnar leiddi í ljós að um var að ræða
rússnesk skip, öll á vegum rússneska flotans, þar af eitt olíuskip. Áhafnir
íslenskra fiskiskipa sýndu ferðum skipanna áhuga og tilkynntu um þær til
Landhelgisgæslunnar.

Þrátt
fyrir að skipin hafi verið innan efnahagslögsögunnar voru þau á alþjóðlegu
hafsvæði með tilliti til siglinga og annarra athafna. Landhelgisgæslan fylgdist
með ferðum skipanna sem yfirgáfu efnahagslögsöguna nokkrum dögum síðar.