
Björgunarsveitir og þyrlusveit kallaðar út vegna aflvana fiskibáts – Þrjú þyrluútköll það sem af er degi
17. júlí 2026
Engan sakaði þegar fiskibátur varð aflvana skammt utan hafnarinnar á Stykkishólmi í dag og rak í átt að landi. Þyrlusvei...
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst í nótt beiðni um aðstoð frá rússnesku fiskiskipi vegna veiks skipverja um borð. Skipið var þá að veiðum um 230 sjómílur suðvestur af Reykjanestá. Áhöfninni var ráðlagt að hífa inn veiðarfæri og halda í átt til lands.
Í morgun var TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, kölluð út og flaug til móts við skipið. Þyrlan TF-SYN var til taks á Reykjavíkurflugvelli á meðan til öryggis. Sjúklingurinn var hífður um borð í þyrluna um 120 sjómílur suðvestur af Reykjanestá.
Þyrlan lenti við Landspítalann í Fossvogi laust fyrir klukkan hálftvö.