Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar annast útköll frá Akureyri um helgina
Tvö útköll það sem af er degi.
11.8.2023 Kl: 14:04
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar annast útköll helgarinnar frá Akureyri og Reykjavík. Áhöfnin á TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar, flýgur norður á Akureyri síðar í dag þar sem hún verður til taks fram á sunnudag. Hin þyrluvaktin verður í viðbragðsstöðu í Reykjavík.
Lögreglan á Norðurlandi eystra óskaði eftir viðveru þyrlusveitarinnar um helgina því gert er ráð fyrir fjölmenni á Norðurlandi, m.a. vegna Fiskidagsins mikla. Viðbragðstími þyrlusveitarinnar verður styttri með þyrlunum staðsettum á sitthvorum hluta landsins. Síðustu helgi voru þyrlurnar gerðar út frá Akureyri og Vestmannaeyjum og gafst það vel.
Sem stendur eru báðar þyrlurnar í útköllum þegar þetta er ritað. Um hádegisbil var óskað eftir aðstoð þyrlusveitarinnar vegna bráðra veikinda í Hornvík á Vestfjörðum og á öðrum tímanum í dag var hin þyrlan kölluð út vegna vélsleðaslyss við Langjökul. Þyrlan var á æfingu skammt frá, hélt strax á vettvang og flutti tvo slasaða á Landspítalann.
Meðfylgjandi eru myndir sem teknar voru á Reykjavíkurflugvelli fyrr í dag.
Helgi Rafnsson, gerir sig tilbúinn til útkalls.
TF-GNA, þyrla Landhelgisgæslunnar.