Vaktskýlið flutt af Faxagarði

7. janúar, 2020

Vaktskýlið var flutt með varðskipinu Þór til Helguvíkur.

7.1.2020 Kl: 14:29

Vaktskýli Landhelgisgæslunnar var flutt frá Faxagarði í
Reykjavík til Helguvíkur með varðskipinu Þór síðdegis í gær. Þar með lauk 60
ára sögu vaktskýlis Landhelgisgæslunnar sem hefur hýst vaktmenn
Landhelgisgæslunnar og allra síðustu ár starfsmenn Securitas við bryggjuaðstöðu
í höfninni. 

Skýlið víkur
fyrir nýrri spennistöð sem til stendur að reisa við höfnina. Faxaflóahafnir
stefna jafnframt á að byggja nýja vaktaðstöðu tengda spennistöðinni. Vaktskýlið
var híft um borð í varðskipið Þór en með undirstöðum vó það um 19 tonn. Þrátt
fyrir það fór ekki mikið fyrir því á afturþilfari Þórs.

Varanlegri viðveru vaktmanna Landhelgisgæslunnar í skýlinu á
Faxagarði lauk fyrir fjórum árum en síðan þá hafa starfsmenn Securitas séð um
vöktun svæðisins.

Vaktskýlið skipaði til fjölda ára stóran sess í starfsemi Landhelgisgæslunnar því starfsmenn, fyrrverandi starfsmenn og velunnarar komu þar gjarnan saman og ræddu landsins gagn og nauðsynjar yfir kaffibolla.

Gamla vaktskýlinu verður fyrst um sinn komið fyrir í Helguvík.

Meðfylgjandi myndir tók Jón Páll Ásgeirsson, stýrimaður.

IMG_6637Vaktskýlið um borð í varðskipinu Þór. JPÁIMG_6642Vaktskýlið vó 19 tonn með undirstöðum. JPÁIMG_6630Varðskýlið híft.