Bangsanum Blæ bjargað

Áhöfnin á TF-GRO lenti með bangsann við leikskólann Laut.

  • GBA_03

10.10.2019 Kl: 15:22

Áhöfnin á TF-GRO, þyrlu Landhelgisgæslunnar, tók þátt í skemmtilegu samfélagsverkefni fyrr í dag þegar bangsanum Blæ var komið til bjargar og hann fluttur á leikskólann Laut í Grindavík. Þar biðu hans leiksskólabörn sem voru búin að fræðast um raunir Blæs sem lenti í háska á leið sinni til Grindavíkur frá Ástralíu. Þyrlan kom Blæ til bjargar og flutti á áfangastað.

Um er að ræða verkefni sem Barnaheill stendur fyrir en bangsanum er ætlað að kenna börnunum vináttu og virðingu. Það var ekki annað að sjá en að leikskólabörnin og starfsmenn leikskólans væru himinlifandi með heimsóknina. Blær fékk plástur hjá áhöfninni á leiðinni og hlaut höfðinglegar móttökur við komuna til Grindavíkur.

Lögreglan á Suðurnesjum og björgunarsveitin í Grindavík voru fengin á staðinn til að tryggja svæðið og aðstoða.

Áhöfnin á TF-GRO bar Blæ á börum inn á leiksskólalóðina og börnin fengu svo að skoða þyrluna og búnað hennar áður en var flogið aftur til Reykjavíkur.

Í áhöfn TF-GRO voru þeir Walter Ehrat, flugstjóri, Andri Jóhannesson, flugmaður, Magnús Pálmar Jónsson, sigmaður og Tómas Vilhjálmsson, spilmaður.

GBA_04Áhöfnin flutti Blæ á leikskólann Laut í Grindavík.IMG_0242Walter Ehrat, flugstjóri, sýnir börnunum bangsann.GBA_10Blær fékk að prófa flugstjórasætið.GBA_02-2-Þyrlan lendir við leikskólann.GBA_20Tómas Vilhjálmsson, Magnús Pálmar Jónsson, Andri Jóhannesson og Walter Ehrat.GBA_03Áhöfnin flytur Blæ á Laut.