

Nýlega fékk Landhelgisgæslan heimsókn frá stýrimannanemum á C-stigi Skipstjórnarskóla Tækniskólans sem komu og kynntu sér starfsemi sjómælinga- og siglingaöryggisdeildar, en vinna með sjókort er vissulega stór þáttur í námi stýrimannanema og síðar í störfum þeirra til sjós.
Farið var yfir ferli þess hvernig sjókort verður til, allt frá því að mælingar eru gerðar með sjómælingaskipinu Baldri og þar til sjókortið kemur út bæði á pappír og í rafrænni útgáfu. Einnig var farið yfir mikilvægi þess að halda sjókortunum uppfærðum en upplýsingar um uppfærslur og breytingar í sjókortum berast til skipa með útgáfu Tilkynninga til sjófarenda sem sjómælinga- og siglingaöryggisdeild Landhelgisgæslunnar gefur út einu sinni í mánuði að öllu jöfnu. Það er svo á ábyrgð skipstjórnarmanna að færa þær upplýsingar inn í kortin svo þau veiti notendum réttar upplýsingar og haldi lagalegu gildi sínu.
Heimsóknir sem þessar auka skilning og þekkingu verðandi stýrimanna á sjókortum og sjóferðagögnum, sem nýtist þeim bæði í náminu og í störfum þeirra til sjós í framtíðinni.

Björgólfur Ingason sérfræðingur ræðir við nemendur um Tilkynningar til sjófarenda og viðhald sjókorta.

Axel Orri Sigurðsson stýrimaður sýnir hvernig unnið er úr mælingum Baldurs.

Erla Diljá Sæmundardóttir sýnir nemendum hvernig sjókort eru unnin.

Hjörtur F Jónsson stýrmaður segir frá mælingum Baldurs.